Takmark Heimsgöngunnar er að fordæma hið stórhættulega ástand í heiminum, sem færir okkur nær og nær kjarnorkustríði og skapa í staðinn kringumstæður sem leitt geta til friðar og tilvistar án ofbeldis.
Gangan sjálf hefst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameriku 2. jan 2010.

Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

Nokkrir stuðnings aðilar.

 

Þó íslenska krónan er ekki hin sterkasta í dag.
Þá er hún sterkari en margt annað, og styrkur okkar liggur í samstöðu.

Sem dæmi:
200$ "24.000" voru sendir til skipuleggjanda í Jeremy og dugðu þeir fyrir lyfjakostnaði 15 manns sem voru á sjúkrahúsi.

Símanúmar hjá Símanum til að hringja í v/Haiti -
íslenskir húmanistar hafa verið með þróunarstarf í Haiti í 15 ár
það fer ekkert í kostnað eða yfirbyggingu því hún er engin, eins og oft
vill verða í söfnunum.

Peningarnir fara ALLIR beint til fólksins. 

Hringdu í númerið: 901-5015

og 1.500 kr. fara í söfnuni

 

Fundur MFÍK um friðaruppeldi

Mánudaginn 16.nóv. var haldinn góður fundur á vegum Menningar- og friðarsamtakanna MFÍK í Friðarhúsinu þar sem rætt var um mikilvægi friðsamlegra samskipta og friðaruppeldi.  
Samveran hófst með léttri máltíð. Margrét Guðmundsdóttir lagði út frá orðinu FRIÐUR og las ljóð.
María S. Gunnarsdóttir sagði frá tildrögum fundar, vinnu MFÍK að friðaruppeldi í gegnum tíðina og að á 9.áratugnum hefði töluverð umræða verið um friðarfræðslu hér á landi.  Nokkrar þingsályktunartillögur voru lagðar fram á Alþingi um málið en efnið reyndist mjög eldfimt og engin niðurstaða náðist.
Síðan hófust umræður með aðferð sem kölluð hefur verið heimskaffihús.  Þátttakendur skiptust í hópa við lítil borð.  Byrjuðu á svokölluðu heimaborði en færðu sig svo, öll nema einn af hverju borði, út í heim til að kynnast öðrum viðhorfum og umræðu á öðrum borðum.

Lesa meira...

Friðarvika

 Vikuna 5.-9. október tókum við þátt í Friðarviku Hjallastefnunnar sem er í tengslum við Heimsgönguna. Heimsgangan sjálf hófst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameríku 2. janúar 2010.

Í friðarviku iðkum við það sem stuðlar að friði í heiminum og friði innra með okkur. Sköpum innri og ytri frið. Spilum tónlist sem stuðlar að frið og látum gott af okkur leiða sem ævinlega J Söngurinn sem við á Hraunborg tileinkum sérstaklega friðarvikunni er ,,Myndin  hennar Lísu".

Myndin hennar Lísu
Olga Guðrún Árnadóttir

Gult fyrir sól, grænt fyrir líf.

 

Ávarp Rafael Correa forseta Evador til stuðnings Heimsgöngunni í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.

Þjóðir heiams, Ekvadorbúar:

Því er lýst yfir í stjórnarskrá Ekvadors að friður ríki á yfirráðasvæði landsins og að erlent herlið megi ekki koma sér fyrir innan landamæra þess. Ekvadorher var stofnaður með lýðræðislegar meginreglur í huga og það að markmiði að vernda réttindi borgaranna, frelsi þeirra og öryggi ásamt því að verja réttmætt fullveldi ríkis og lýðveldis.

Lesa meira...

Þriðjudaginn 6. október sameinuðumst við börn og kennarar á Akri í
friðargöngu í kringum fallega skólann okkar. Eftir gönguna mynduðum við
friðarhring á skólalóðinni og sungum saman ,,Myndin hennar Lísu" um leið
og við nutum þess að senda okkar friðsælu, kærleiksríku  orku út í
samfélagið.