Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

Heimsgangan hyggst nú í samvinnu við mörg samtök og einstaklinga standa fyrir friðar-gjörningi á Miklatúni kl. 20.00, 2. Október n.k í tilefni af upphafsdegi Heimsgöngunnar þennan dag.

Með þessu er einning haldinn hátíðlegur „Dagur án ofbeldis“ (Day of Nonviolence) sem Sameinuðu þjóðirnar hafa helgað þessu málefni.

Nánar: www.daguranofbeldis.info og myndband sem sýnir mannleg friðarmerki víðsvegar um heiminn:Myndband

Gjörningurinn felst í því að fjöldi fólks mun stilla sér upp á Miklatúni með blys í hendi til að mynda stórt mannlegt friðarmerki (sjá mynd mynd frá Búdapest þar sem slíkt merki var myndað þann 6. ágúst s.l. til að minnast fórnarlamba kjarnorkuárásanna á Hirosima og Nagasaki).
 
Hugmyndin um mannlegt friðarmerki byggist á því að fá samtök og einstaklinga til þess að tryggja ákveðinn fjölda þátttakenda. Seldir eru fyrirfram miðar eða ávísun á blys á kr. 500 og fá þátttakendur blysin afhent á staðnum gegn framvísun á miðanum. Þegar eru nokkur samtök með í áforminu.
 
Nánari upplýsingar má fá hjá
Helgu, sími: 861 9175; netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ;
Júlíusi, simi: 897 7403; netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ;
Methúsalem, sími 661 5621; netfang Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Ragnari, sími: 696 3810; netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Friður.