Vinakeðja í kringum tjörnina
Heimsganga Hjallaþorpsins var gengin í morgun. Barnahópurinn gekk ásamt kennurum við glaðlegan trommuslátt niður að tjörn þar sem allir tengdust vinaböndum. Þar var sungið svo undir tók um veröld alla! Þetta var ótrúlega kærleiksrík stund með þessum stórmerkilegu börnum.

