Friðarvika
Vikuna 5.-9. október tókum við þátt í Friðarviku Hjallastefnunnar sem er í tengslum við Heimsgönguna. Heimsgangan sjálf hófst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameríku 2. janúar 2010.
Í friðarviku iðkum við það sem stuðlar að friði í heiminum og friði innra með okkur. Sköpum innri og ytri frið. Spilum tónlist sem stuðlar að frið og látum gott af okkur leiða sem ævinlega J Söngurinn sem við á Hraunborg tileinkum sérstaklega friðarvikunni er ,,Myndin hennar Lísu".
Myndin hennar Lísu
Olga Guðrún Árnadóttir

