Ég styð þetta verkefni af mjög einfaldri ástæðu;
ég get ekki þolað lengur við að horfa upp á það stríð
og það ofbeldi sem er buið að vera í gangi í heiminum,
Virðingarfyllst, Björgvin Franz Gíslason
Leikari
Ég styð þetta verkefni af mjög einfaldri ástæðu;
ég get ekki þolað lengur við að horfa upp á það stríð og það ofbeldi sem er buið að vera í gangi í heiminum,
þar sem óbreyttir borgarar, og þá oftar en ekki börn, verða fyrir barðinu á hatri,
spillingu og græðgi valdamikils minnihluta eins og er svo snilldarlega orðað í bæklingi samtakanna.
Mér brá tildæmis þegar ég sá í bæklingnum að einungis 10% af því fé sem fer í að smíða vopn,
gæti bundið enda á allt hungur í heiminum;
Að hugsa sér, einungis 10% - Það er augljóst að heimsbyggðin vill sjá breytingar
Ég vil allavega lifa í veröld sem er laus við ofbeldi, hatur og stríð, ég vil búa í veröld
þar sem hægt er að leysa ágreining með umburðarlyndi og kærleika.
Hljómar fjarstæðukennt, en afhverju?
Ef að einstaklingar geta leyst ágreining sín á milli með þessum hætti, afhverju þá ekki heilu þjóðirnar og leiðtogar þeirra?
Ég meina í alvörunni, afhverju ekki?
Ég hlakka til að taka þátt í þessu verkefni og vil ég hvetja alla, og þá meina ég alla til að gera slíkt hið sama, því þetta varðar mannkynið í heild sinni
Virðingarfyllst, Björgvin Franz Gíslason

