Ég styð heimsfriðargöngu heilshugar.
Tilgangur minn er meðal annars að leggja mitt af mörkum til þess að gera heiminn að betri stað til að lifa á ásamt því að skapa fordæmi.
Elín Sigurðardóttir
Rope Yoga Meistarakennari
Því fleiri sem verja orku sinni til friðar, þakklætis og kærleika þeim mun meira af friði, þakklæti og kærleika munum við laða að okkur í lífinu og ég minni á það að hvert og eitt okkar skiptir máli. Stöndum saman að því að laða að okkur ást, þakklæti, kærleika og frið og sýnum hversu megnug við erum. Við erum öll að vinna saman að því að skapa eina heild og frið á jörð þar sem við sköpum rými til þess að lifa í sátt og samlyndi. Við erum skaparar. Öll stríð byrja í huga okkar og þar getum við skapað frið og verið fordæmi fyrir aðra vegna þess að við erum alltaf að senda umheiminum skilaboð og hvaða skilaðboð viljum við senda samferðamönnum okkar.

