Maðurinn á alla æfi í baráttu við andstæð öfl í brjósti sínu. Þrátt fyrir mistök er mikilvægt að viðleitnin til hins góða, fagra og sanna sé sífellt virk í sálum okkar.
Á þann hátt tekst okkur þrátt fyrir allt að láta marga drauma okkar rætast.
Gunnar Kvaran sellóleikari og
prófessor við Listaháskóla Íslands
Eitt af því sem við þráum hvað heitast er friðurinn. Þann frið, sem raunverulega sýnir allt það besta í samskiptum manna. Samskipti manna er mikilvægasta mál í heimi, því öll velferð jarðarbúa er undir þeim komið. Ég fagna heilshugar og styð innilega þetta stórbrotna framtak; Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis. Ég þakka hjartanlega öllu því mörgu, góða fólki, sem hefur gert þetta mögulegt. Megi friður ríkja í hjörtum okkar svo draumurinn um frið öllum til handa megi rætast.
Gunnar Kvaran sellóleikari og
prófessor við Listaháskóla Íslands

