Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

SAMFÉS styður heilshugar Heimsgöngu til friðar. Hafi einhverntímann verið
tími til að standa saman með friði þá er það í dag. SAMFÉS mun að sjálfsögðu
taka þátt í Heimsgöngunni.

 

 

 

Þann 2.-4. október 2009 munum við vera með
Landsmót SAMFÉS, en það fer fram á Sauðárkróki. Þar munu koma saman um 400
unglingar af öllu landinu til að fræðast og skemmta sér.

Þema mótsins verður FRIÐUR en það vill svo til að félagsmiðstöðin á
Sauðárkróki heitir einmitt Friður :) Við munum hefja Landsmótið á
föstudeginum með
því að ganga friðargöngu um bæinn og verður ekki ólíklegt að kyndlar og
kerti verði hafðir í hönd. Á sunnudeginum er síðan Landsþing Ungmennráðs
Samfés en þar munu þessi 400 ungmenni ræða saman með þemað FRIÐUR að
leiðarljósi.