Auðvitað lýsi ég stuðningi við Heimsgönguna! Hvernig er hægt að styðja ekki Heimsgönguna? Vilja ekki allir friðsælan heim án ofbeldis? Þarf eitthvað að efast um það? Auðvitað ekki.
Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistamaður og rithöfundur
Kannski er það vegna þess hvað þetta er allt saman sjálfsagt að það hefur tekið mig marga mánuði að bregðast við kallinu og rausnast til að skrifa nokkur orðtil stuðnings Heimsgöngu í þágu friðar og og tilveru án ofbeldis?
Er ekki nóg af fólki í þessu hvort sem er? Heimsfriðinn skiptir varla miklu hvort hér verður einu nafninu fleira eða færra.
Ætli það sé ekki einmitt tilefnislaus tregða meðaljóns eins og þess sem þetta skrifar, sem í reynd er illvígasti þröskuldurinn á leið mannkyns til varanlegs friðar? Að í skjóli slíks prívat sinnuleysis þrífist flest það sem kennt er við misrétti, ójöfnuð og ofbeldi í þessum heimi, hvort sem litið er til viðurkenndra átakasvæða í öðrum álfum eða verðlaunagarðanna hjá okkur sjálfum.Það er sjálfsagt með samband okkar við friðarhugsjónina eins og manneskjuna sem við segjumst elska; að það þarf að næra og þroska af heilindum og helst ekki að láta daginn líða án þess að sýna það
með einum eða öðrum hætti að hugmyndir okkar eigi sér raunverulegar rætur í hjartanu. Að við verðum að sjá til þess að hin meinta ást okkar og hlýja birtist ekki aðeins í ætlan okkar og muldri heldur einnig í skýrum orðum og skilaboðum - en þó allra helst í gjörðum.
Eigi hún ekki að deyja.
Þorvaldur Þorsteinsson
myndlistamaður og rithöfundur

