Facebook Share

Setja á Facebook

Bæklingur Heimsgöngunnar.
Smellið á myndina til að ná í hann.

Friðarvika

 Vikuna 5.-9. október tókum við þátt í Friðarviku Hjallastefnunnar sem er í tengslum við Heimsgönguna. Heimsgangan sjálf hófst á fæðingardegi Gandhis, 2. október 2009 á Nýja Sjálandi, stendur yfir í 3 mánuði og endar við rætur Aconcagua, hæsta fjalls Suður-Ameríku 2. janúar 2010.

Í friðarviku iðkum við það sem stuðlar að friði í heiminum og friði innra með okkur. Sköpum innri og ytri frið. Spilum tónlist sem stuðlar að frið og látum gott af okkur leiða sem ævinlega J Söngurinn sem við á Hraunborg tileinkum sérstaklega friðarvikunni er ,,Myndin  hennar Lísu".

Myndin hennar Lísu
Olga Guðrún Árnadóttir

Gult fyrir sól, grænt fyrir líf.

 

Ávarp Rafael Correa forseta Evador til stuðnings Heimsgöngunni í þágu friðar og tilveru án ofbeldis.

Þjóðir heiams, Ekvadorbúar:

Því er lýst yfir í stjórnarskrá Ekvadors að friður ríki á yfirráðasvæði landsins og að erlent herlið megi ekki koma sér fyrir innan landamæra þess. Ekvadorher var stofnaður með lýðræðislegar meginreglur í huga og það að markmiði að vernda réttindi borgaranna, frelsi þeirra og öryggi ásamt því að verja réttmætt fullveldi ríkis og lýðveldis.

Lesa meira...


Íþróttafélagið þór á Akureyri lýsti formlega yfir stuðningi sínum við Heimsgöngu í þágu friðar og tilveru án ofbeldis, á Pollamóti Þórs og Icelandair sem fram fór dagana 4.- 5. Júlí. 

Af því tilefni dró Sigfús Helgason formaður Þórs, félagsfána þórs ásamt fána Heimsgöngunnar að húni.



Eigi að komast hjá hörmungum síðar þarf að bregðast við strax

Þann 6. ágúst 1945 kl. 8.00 skipaði Truman Bandaríkjaforseti svo fyrir að fyrstu kjarnorkusprengju heims yrði varpað á Hiroshima. Þann 9. ágúst sama ár var annarri kjarnorkusprengju heims varpað á Nagasaki. Báðar borgirnar voru lagðar í algjöra rúst í einni andrá og þúsundir manna fórust samstundis. Næstu daga létust svo fleiri sem höfðu verið fjær miðdepli sprenginganna og enn þann dag í dag þjást þeir fáu sem lifðu þær af - og enn eru á lífi - af afleiðingum geislunar. Hún setur líka mark sitt á síðari kynslóðir. Nokkrum dögum seinna gafst japanski keisaraherinn upp og þar með lauk síðari heimsstyrjöldinni.

Lesa meira...

Framsaga Methúsalems Þórissonar á Málþingi undir yfirskriftinni “Mennsk  framtíð” sem Húmanistahreyfingin stóð fyrir ásamt Reykjavíkurakademíunni 22. nóvember 2008


Kæru vinir,
...  þeir tímar sem við nú lifum varpa ljósi á hversu aðstæður í heiminum eru þrungnar ofbeldi  ...
Ég er ekki aðeins að vísa til hins efnislega eða líkamlega ofbeldis sem beitt er í líkamsárásum, morðum, pyntingum og stríði. Einnig er til efnahagslegt ofbeldi þar sem fólk er misnotað fjárhagslega, trúarlegt og skoðanaofbeldi þegar fólki er mismunað og það útilokað vegna skoðanna sinna. Mismunun og ofbeldi tengt litarhætti, kynþætti og þjóðerni fyrirfinnst einnig, svo og sálrænt og siðferðilegt ofbeldi. 

Lesa meira...