Öll samtök, samfélög eða hópar geta tekið þátt í
“Heimsgöngunni í þágu friðar og tilveru án ofbeldis”
með því að fylla út blaðið hér að neðan.
Þátttaka ykkar verður gerð opinber á vefsíðu Heimsgöngunnar.
Ef þið ætlið einnig að hafa frumkvæði að einhverskonar aðgerðum
eða taka þátt í skipulagningu Heimsgöngunnar
þá er gott að það komi fram á blaðinu vegna samhæfingar.
Helstu möguleikar til þátttöku eru:
- Að félagið verði með í göngunni hluta leiðarinnar –
innan borgar, lands, milli borga, milli landa
eða á leið sem tengist aðalbraut Heimsgöngunnar.
- Leggja til samband við önnur samtök eða þekkta einstaklinga
og láta boð út ganga um Heimsgönguna í umhverfinu,
sveitarfélagi og út um land.
- Hefja eigin aðgerðir sem falla að helstu tillögum Heimsgöngunnar.
Slíkt frumkvæði er lagt til við samæfingarnefnd Heimsgöngunnar hér á landi,
samþykkt og sett á vefsíðuna.
- Taka þátt í samhæfingarnefnd.
Þetta verkefni er samlegð hundruða félagasamtaka:
Listi allra félagasamtaka sem taka þátt og eru með í skipulagningu á Heimsgöngunni
verður birtur á vefsíðu hennar.